Velkomin

Velkomin á Hrífunesið! 

Á Hrífunesi hefur verið rekin ferðaþjónusta um áratuga skeið. Núverandi eigendur Borgar Þorsteinsson og Elín Þorgeirsdóttir hófu ferðaþjónustu á Hrífunesi árið 2007.

Hrífunes er staðsett á Suðurlandinu, á fallegum og friðsælum stað í Skaftártungu á milli Mýrdals-  og Vatnajökuls um 230 km. frá Reykjavík. Skaftártunga er rómuð fyrir fegurð og frumkrafta nátturunnar og þar má finna einn þéttvaxnasta birkiskóg landsins.

Við bjóðum upp á tvenns konar gistingu; gistingu á bænum Hrífunesi (húsið) og gistingu á einu rótgrónasta tjaldsvæði landsins þar sem ferðalangar geta komið sér fyrir með fellihýsi, tjaldvagna eða tjöld.

Í Hrífunesi er einnig að finna gistiþjónustu í öðru húsi sem tekur 8-10 manns. Nánari upplýsingar um húsið.

Við óskum ykkur ánægjulegrar dvalar á Hrífunesi.