Margt er hægt að gera sér til afþreyingar í nágrenni Hrífuness. Hér fyrir neðan má lesa um ýmsa afþreyingu sem í boði er en við mælum einnig með gönguferðum um nágrennið. Í nánasta umhverfi eru margir spennandi göngumöguleikar og meðal annars er ógleymanlegt að ganga upp í Pottgil og upp á Hrífunesheiðina, eða bara um gil og gjúfur í kringum Hrífunes tjaldstæðið.
Golf: Golfklúbbinn Laka má finna á Kirkjubæjarklaustri og einnig má finna golfklúbbinn Vík í Mýrdal einmitt á samnefndum stað þ.e. í Vík í Mýrdal. Sundlaug er að finna á bæði Kirkjubæjarklaustri sem og í Vík en hestaleiga er einnig til staðar í Vík. Vélsleða- og fjórhjólaleiga sem og veiði er í boði að Sólheimum. Við mælum einnig með spennandi flúðasiglingum niður Hólmsána.
Umhverfið
Hrífunes er í Skaftártungum, rétt í jaðri hálendisins, og þar í grenndinni eru óendanlega margir áhugaverðir og fallegir staðir og furður margbreytilegrar náttúru og sögustaðir, svo að fátt eitt sé nefnt.
Frá þjóðvegi 1 eru aðeins 6 km. að Hrífunesi, en um hlaðið lá alfaraleið áður en brúin var sett á Kúðafljót.
Útsýnið er tilkomumikið til Hjörleifshöfða og Mýrdalsjökuls í vestri, Vatnajökuls í austri og að því er virðist takmarkalausrar flatneskju Mýrdalssands í suðri. Að baki glittir í fjallaklasa hálendisins og kraftmikil Hólmsá er beljandi við túnfótinn.
Frá Hrífunesi er stutt að bregða sér inn á Fjallabaksveg nyrðri um Eldgjá allt til Landmannalauga (70 km.) eða inn að Langasjó eða syðri Fjallabaksveg um Öldufellsleið, öllum ógleymanleg, sem farið hafa.
Lakagígar eru í 50 km. fjarlægð og Kirkjubæjarklaustur í 35 km. fjarlægð en þaðan eru svo 70 km. að Skaftafelli.
Innan seilingar eru ótal margir skoðunarverðir sögustaðir tengdir Njálu og Sturlungu og frá tíma kaþólskunnar þegar klaustur voru í Álftaveri og á Klaustri.