Hrífunesbærinn (húsið) tekur 14-18 manns í uppábúin rúm. Í húsinu er sameiginlegur aðgangur að baðherbergi með sturtu, stofu, eldhúsi og sjónvarpi. Boðið er uppá morgunverðarhlaðborð, léttan hádegisverð og hægt er að fá kvöldverð eftir pöntun.
Hægt er að leigja allt húsið í heild en einnig er hægt að leigja stök herbergi. Herbergjaskipan er eftirfarandi:
- 5 tveggja manna herbergi
- 2 fjölskylduherbergi með hjónarúmi og kojum (sem rúma fjóra)
Leigutíminn á stökum herbergjum nær frá 1. júní til 30. ágúst 2011. Verðskrá fyrir leigu á herbergjum.
Leiga á öllu húsinu
Hægt er að leigja húsið í heild og nær yfir tímabilið frá og með 1. september til 31. maí.
Verð fyrir fyrstu nótt er 30.000 krónur og næsta nótt/nætur kosta 15.000 krónur. Aukalega þarf að greiða 8.000 krónur fyrir þrif ef húsi er ekki skilað hreinu. Húsið er uppábúið fyrir 10 manns og gildir verðið miðað við þann fjölda. Fleiri geta gist í húsinu (allt að 12 manns) án þess að greiða þurfi fyrir það aukalega. Ef hópurinn er stærri en 12 manns þarf að greiða 500 krónur fyrir mann á hverja nótt. Börn 4 ára og yngri gista án endurgjalds.
Nánari upplýsingar
- Húsnæði: Hrífunes (húsið)
- Sími: 7700123
- Opnunartími: 1. maí- 31. september (ef leigt er allt húsið)
- Þjónusta: Bændagisting á Hrífunesbæ
- Rafmagnstengi: Já
- Vatn: Já, kalt og heitt
- WC: Já
- Sturta: Já
- Þvottaaðstaða: Já (kostar aukalega)
- Inniaðstaða: Já
- Leiktæki fyrir börn: Nei
- Félagsheimili á staðnum: Tungusel
- Golf: Kirkjubæjarklaustur, Vík í Mýrdal
- Sundlaug: Kirkjubæjarklaustur, Vík í Mýrdal
- Hestaleiga: Vík Mýrdal
- Vélsleða-fjórhjólaleiga: Sólheimar
- Veiði: Sólheimar
- Bensínstöð: Kirkjubæjarklaustri, Vík í Mýrdal
- Matsölustaður: Samkvæmt samkomulagi