Tjaldstæðið að Hrífunesi er eitt elsta tjaldstæði landsins og hefur verið þekktur áningastaður Íslendinga um árabil. Tjaldstæðið er umlukið þéttvöxnum náttúrulegum birkiskógi þar sem finna má lautir og lundi sem hægt er að tjalda í eða koma fyrir tjaldvagni. Einnig er þar stór dalur þar sem fellihýsi komast fyrir. Ekki er rafmagn á svæðinu heldur er það náttúran og kyrrðin sem býður ykkur velkomin. Salernisaðstaða er á staðnum og kalt vatn.
Verð
- 500 kr. hver nótt á mann.
- Börn yngri en 12 ára gista án endurgjalds á tjaldstæðinu.
Nánari upplýsingar
Tjaldstæði: Hrífunes tjaldstæðið
Sími: 7700123
Opnunartími: 1. júní - 30. ágúst
Þjónusta: Bændagisting á Hrífunesbæ
Rafmagnstengi: Nei
Vatn: Já, kalt
WC: Já
Sturta: Nei
Þvottaaðstaða: Já, í Hrífunesbæ (kostar aukalega)
Inniaðstaða: Nei
Leiktæki fyrir börn: Nei
Félagsheimili á staðnum: Tungusel
Golf: Kirkjubæjarklaustur, Vík í Mýrdal
Sundlaug: Kirkjubæjarklaustur, Vík í Mýrdal
Hestaleiga: Vík Mýrdal
Vélsleða-fjórhjólaleiga: Sólheimar
Veiði: Víða á svæðinu
Bensínstöð: Kirkjubæjarklaustri, Vík í Mýrdal
Matsölustaður: Í húsinu, samkvæmt samkomulagi