Um okkur

Borgar Þorsteinsson og Elínu Þorgeirsdóttur þekkja margir í gegnum ferðafyrirtækið Afríka Ævintýraferðir sem þau hafa rekið frá 1997. Mörg hundruð Íslendingar hafa notið leiðsagnar þeirra um framandi slóðir Afríku hvort sem það er um Masaiaþorp Kenya eða á hæsta fjalli Afríku, Kilimanjaro, í górilluleit í frumskógum Rwanda eða um sléttur Uganda. Árið 2007 keyptu þau land á Hrífunessvæðinu og hafa verið að byggja upp ferðaþjónustu síðan.

Borgar og Elín hlakka til að taka á móti þér í Hrífunesinu.

Kort